
Öryggisdeildin þín
01.
Hver er helsti ávinningurinn af því að velja öryggisdeildina?
Glöggt er gestsaugað er máltæki sem á vel við. Betur sjá augu en auga.
Fjöldi kosta er við utanaðkomandi aðstoð í öryggismálum.
Helst má nefna að persónuleg sambönd hafa oft á tíðum áhrif á ákvarðanatökur í öryggistengdum málum. Með okkar aðstoð komum við inn, vinnum málið og förum aftur.
Oftar en ekki eru öryggismálin hugsuð út frá einstaklingum og þoli/óþoli þeirra frekar en eftir reglugerðum og lögum. Félög um heim allan eru að "undermanage" eða gera rétt nóg og varla það til að uppfylla lægstu kröfur í öryggismálum. Þegar atvik gerast og erfiðar aðstæður koma upp klóra sér allir í kollinum yfir ástandinu og furða sig á aðgerðar og framtaksleysi.
02.
Oft á tíðum nægir að fara í átaksverkefni til að stefnumóta og innleiða í framhaldinu flotta stefnu í öryggismálum. Þá er gott að gera kallað til utanaðkomandi aðstoð sem horfir á málin innan frá tímabundið en hefur svo eftirlit með framvindunni og árangrinum utan frá.
Þegar atvik koma upp erum við kallaðir til og viðbragðið því sterkt og fljótt og starfsmenn upplifa að þeir séu í öruggum höndum en ekki að málin séu látin reiða á rekanum og unninn eftir hentistefnu hverju sinni. Afar mikilvægt er að starfsmenn finni sig örugga og að vinnuveitandinn gripi þá þegar mest þarf á að halda.
03.
Innra eftirlit er jafn mikilvægt í rekstri og vörutalning. Félag sem ekki þekkir lagerstöðu sína eða veikleika í rekstri verður ekki langlíft. Sérfræðingar okkar sjá um innra eftirlit nokkurra félaga. Bæði daglegt rauntíma eftirlit og átaksverkefni t.d. með aðkomu eftirlitsmyndavéla eða annara aðgangsstýringa innan félagsins.
04.
Eftir að viðskiptasambandi hefur verið komið á og gagnkvæmt traust til staðar þá setjum við upp fjartengingu á milli öryggisdeildar og felags í þjónustu og vinnum við langflest verkin okkar í fjarvinnu. Þegar þörf krefur komum við á staðinn en annars erum við mennirnir á bakvið tjöldin.
05.
Við erum sérfræðingar í eftirlitsmyndavélum, öryggis og aðgangsstýrikerfum, sölukerfum, sjóðstalningum, eftirliti með vörumóttöku, stýrum rannsóknum mála, tökum saman sönnunargögn, komum að eða sjáum um erfiðar uppsagnir, útbúum ákærur og fylgjum eftir hjá dómstólum. Útvegum öryggisverði/atburðastjórnendur fyrir sérstök tilefni. Sjáum um fræðslu fyrir starfsmenn og stjórnendur um öryggistengd mál. Útbúum sérhannaða fræðslu fyrir hvern viðskiptavin sé þess óskað en annars förum við eftir standard fræðsluerindum öryggisdeildar.